Hanna

Wednesday, October 12, 2005

Suður

Við erum að fara suður annaðkvöld.
Fyrrverandi tengdaafi minn var að deyja, þ.e. langafi barnanna, og ég ætla að fara með þeim á jarðarförina. Gamli karlinn var alveg einstakur maður og ég get ekki annað en farið líka.

Mér finnst samt alveg geðveikt böggandi að þurfa að fara suður.
Æfingaprógrammið fer í klessu. (nú segir Kittý að ég sé alltof ýkt)
Ég verð að taka með hlaupaskó (til að hlaupa um verslunarmiðstöðvarnar), það er nú ekkert smá átak að skoða í búðir !

En, í alvöru... þá ætla ég að njóta þess að vera í stórborgini og ætla meirass seija að fá mér eitthvað djúsí að borða - án þess að fá (mikið) samviskubit :)

Ég er nú með smá samviskubit yfir því að henda Helga út úr íbúðinni sinni. Hann ætlar að lána okkur íbúðina, og flytja á meðan til Ömmu Ásdísar. Það hefði etv. verið allt í lagi á venjulegum fimmtudegi en málið er að við skemmum rómantíska kvöldið þeirra Helga og Ásdísar. Þau fara á Holtið á fimmtudagskvöldið og í staðinn fyrir að komast heim og eiga saman rómantíska stund, þurfa þau nú að fara til Ömmu Ásdísar..... varla geta þau verið "rómantísk" þar ?? eða hvað ?

Hvað erum við búin að gera ?

3 Comments:

  • það er alveg nógu rómantískt að fara á Holtið mar! rómantíkin er allstaðar

    By Blogger holyhills, at 12:50 PM  

  • Rómantíkin er í hjartanu, það er góð speki.

    By Anonymous Anonymous, at 7:40 PM  

  • Amma er rosa rómantísk

    By Blogger Ásdís, at 12:00 AM  

Post a Comment

<< Home