Hanna

Wednesday, October 12, 2005

Ögmundur snillingur !

Ögmundur fór á tónleika með Sign í gær og stóð beint fyrir framan hátalarann allan tímann!

Ég rak hann í skólan í morgun þrátt fyrir mótmæli, hann kvartaði um verk í eyrum og stífann hnakka.
Fékk hringingu frá hjúkrunarfræðingu rétt fyrir hádegi, Ögmundur hafði þá kíkt til hennar vegna stöðugs suð í eyra og heyrnarskerðingar. Hjúkkan bað mig vinsamlega um að koma drengnum til HNE læknis sem fyrst til að athuga heyrnina þar sem heyrnarmæling sýndi skelfilegar tölur. Ég misnotaði aðstöðu mína á FSA og fékk tíma strax hjá nýja HNE lækninum.

HNE læknir sagði að heyrnin væri sködduð, óvísst væri með framhaldið. Þetta lagast stundum og stundum ekki, og nú yrði hann bara að bíða !

Næst á dagsrká er heyrnarmæling hjá heyrnar- og talmeinastöð Íslands.

3 Comments:

  • Úff.

    By Anonymous Anonymous, at 12:17 PM  

  • fokk

    By Blogger holyhills, at 12:48 PM  

  • Shit, ég fór á Prodigy tónleika stuttu eftir að ég heyrði þetta og var með eyrnatappa mest allan tímann. Það virkar og maður heyrir alveg nóg.

    By Anonymous Anonymous, at 11:45 PM  

Post a Comment

<< Home