Hanna

Monday, October 24, 2005

Rjúpur

Ég fór í mína fyrstu rjúpnaveiðiferð um helgina. Það var ekki leiðinlegt. Ég þarf að fá mér byssuleyfi !

Við fórum á laugardag upp á Vaðlaheiði og röltum þar um í nokkra klukkutíma. Ég sá strax að ég á (mjög) langt í land með að verða góður rjúpnaveiðimaður, aðallega fyrir það að ég er haldin "rjúpnablindu", ég sá aldrei fxxing fuglinn !! Ármann var alltaf að reyna að benda mér á fugla en aldrei sá ég neitt ! Svo skaut hann og ég sá fiðrið fjúka um og áttaði mig þá (loksins) á hvar fuglinn hafði verið. VIÐ veiddum þrjár rjúpur og vorum mjög ánægð með það.

Á sunnudeginum fórum við upp á Öxnadalsheiði, og inn í Grjótárdal. Þar þurftum við að ganga langt upp í fjall og það var erfitt. VIÐ sáum mun fleiri fugla á þessu svæði, en ég fann fyrir "rjúpnablindunni" áfram. VIÐ fengum samt sjö fulga í þessari ferð og það var mjög gaman.

Ég fann fyrir örlítilli þreytu í gærkvöldi, ég lá reyndar nær dauða en lífi í sófanum í allt gærkvöld og náði ekki að þrífa íbúðina eins og ég hafði ætlað mér.... en ég býst við að ég geti gert það eftir vinnu í dag.

3 Comments:

  • oj oj aumingja fuglarnir segji ég bara - þvílik meðferð!!!!! verði ykkur að góðu...

    By Anonymous Anonymous, at 4:44 PM  

  • Ég held að þetta tengist aumingja leiðinlega fuglinum þeirra, honum Bubba litla. Einhvern daginn "sleppur" hann óvart út og þau skjóta hann. "Æi, okkur sýndist þetta vera rjúpa. Æ, æ". Grimmdin og tilfinningaleysið er algert.

    By Anonymous Anonymous, at 1:12 AM  

  • ég mun sko hóa.....

    en hefuru ekki áhuga á að kíkja með í rjúpur næst þegar við förum ?

    By Blogger Hanna, at 11:11 AM  

Post a Comment

<< Home