Suðurferð
Við fórum suður um helgina og það gekk vel.
Fundum flísar sem okkur finnst flottar og sáum baðkar sem við viljum, þannig að nú þarf að skipuleggja baðherbergið og síðan getum við farið að eyða ....
.. óógeðslega er dýrt að gera upp baðherbergi, ég er sannfærð um að það fari 500 kall í þetta !
Ég náði aðeins að kíkja í tuskubúðir, en ekki eins mikið og ég hefði viljað. Ég fann t.d. ekki fermingarkjól á mig ! en ég keypti mér buxur og pils.
Ég fór líka á fund í ættarmótsnefnd og héldum við ótrúlega góðan fund, náðum að ákveða hvert yrði farið og hvenær, pöntuðum svæðið og sal með, skipuðum í nefndir og margt fleira.
Geri aðrir betur !
Nonni og Tóta (nýjasta mágkonan mín) buðu okkur í mat og áttum við góða stund í Grafarholtinu hjá þeim. Það er alltaf gaman að hitta nýjar mágkonur :)

8 Comments:
Ættarmótsnefnd? Tengist það eitthvað minni ætt?
By
Anonymous, at 4:31 PM
Takk fyrir að hafa snúið rúminu.... þetta er alveg magnað
By
Ásdís, at 6:01 PM
Já Siggi, þetta er ættin þín, Systkini mömmu og co og Börn Erlu frænku og co ætla að hittast
By
Hanna, at 3:27 PM
Kúl... Hvenær?
By
Anonymous, at 1:45 AM
Ég kem ekki heim fyrr en í byrjun júlí ? :( ?
By
Anonymous, at 1:46 AM
Þetta er í byrjun júní :(
By
Hanna, at 9:56 AM
það er samt auðvelt að breyta júní í júlí. Þarft bara að hreyfa puttann einn upp og tvo til hægri... easy...
By
Anonymous, at 3:59 PM
Hei, má ég líka koma á ættarmótið? :Þ
Vona bara að ég teljist enn með þrátt fyrir mínar aðeins ooof sjaldgæfar heimsóknir :þ
btw: nýtt blogg lenaj.wordpress.com :)
By
Anonymous, at 6:51 AM
Post a Comment
<< Home