Hanna

Monday, December 05, 2005

jóla jóla

Ég seldi eina mynd og eitthvað af jólakortum á markaðinum.

Reyndar má segja að ég hafi selt tvær myndir þar sem Myriam tók frá eina mynd líka.

Ég er alveg rosalega hamingjusöm yfir þessu þ.e. að einhver vilji kaupa það sem ég er að mála! Það er varla að ég trúi þessu !

Annars vorum við Ármann rosalega dugleg í gær. Ármann bakaði stollen og ég gerði 4 smákökusortir. Súkkulaðibitakökur, negulkökur, lakkrístoppa og gervi-sörur.
Það voru ekki allir sáttir við gervi-sörurnar sem er kannski ekki skrítið þar sem þær eru algjörar svindl-kökur. Ég keypti makkarónukökur og súkkulaðikrem og skellti þessu saman í sörur. dífið svo í súkkulaði. Þær líta út eins og sörur.... !

Ég gerði líka konfekt. Ég fyllti döðlur með súkkulaðikremi og dýfði þeim svo í súkkulaði (namm), ég var líka með þurrkaðar apríkósur sem ég dífði í súkkulaði, mmmmm !

5 Comments:

  • mmmm ég fæ að smakka konfekt!!?!!

    By Blogger holyhills, at 12:56 PM  

  • er hægt að fá almennilegar döðlur og fíkjur og svoleiðis heima? Núna er svoleiðis tímabil hérna úti. MMMMM....

    By Anonymous Anonymous, at 1:14 PM  

  • Ég keypti nú bara gamaldags döður í poka.... veit ekki hvort það flokkast undir almennilegar döðlur !

    By Blogger Hanna, at 1:40 PM  

  • Nei, það flokkast ekki undir almennilegar döðlur.

    By Anonymous Anonymous, at 10:17 AM  

  • Gamaldags döðlur í poka standa nú alltaf fyrir sínu :)

    By Anonymous Anonymous, at 9:10 PM  

Post a Comment

<< Home