bráðum koma blessuð jólin
Jólin eru að koma og ég var dugleg við að undirbúa þau um helgina.
Ég ætla mér alltaf að vera róleg fyrir jólin og ekki tapa mér í bakstri og þrifum, en það gengur bara ekki. Húsið verður að vera HREINT á jólunum ! Helgin fór í það að þrífa allt hátt og lágt, og veitti ekki af ! Ég á enn slatta eftir og klára það væntanlega um næstu helgi.
Annars verða þetta skrítin jól. Eva fer til pabba síns, Hildur og Kári til mömmu sinnar þannig að við erum þrjú eftir. Við erum ekki alveg viss um hvernig þetta verður, hvort við förum eitthvað um jólin eða hvort við fáum fólk til okkar ! Það kemur í ljós fljótlega.......... vona ég.
Sóley mummadóttir er búin gista hjá okkur í nokkra daga, og það var áhugavert að rifja upp umönnun ungra barna. Það gekk bara mjög vel. Það er ekki mikið mál að fá svona unga inn á heimilið þegar það er fullt af fólki til að annast hana. Sóley naut þess að fá alla þessa athygli og ég held að henni hafi liðið ágætlega hjá okkur :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home