Valentínusarmáltíðin
Ég sá í gær að "tuð" borgar sig. Þegar Ögmundur kom heim, fór hann að laga til- þar sem allt átti að vera fínt þegar dömurnar mættu í dinner. Hann byrjaði á því að skipa vini sínum fyrir "taktu töskurnar sem eru í tröppunum og farðu með þær inn í herbergi" (þetta segi ég við Ögmund á hverjum degi ! ). Svo var byrjað á eldamennskunni, allt í stressi, en þetta gekk samt upp með smá aðstoð frá Ármanni.
Það sem mér fannst best var að dúkað var upp í stofunni, sparimatarstellið dregið fram og Ögmundur spurði hvort við ættum ekki örugglega "löng kerti"... þetta þurfti allt að vera perfect.
Þegar ég kom heim um kvöldið var lítið útvarp inni í stofu, og ég spurði hvort þau hefðu hlustað á útvarpið.... já, þau hlustuðu á Létt fm xx.x !
Svo fékk ÖK auðvitað lánaðar þrjár rómantískar myndir af M og H og endaði kvöldið með því að horfa á eina slíka.
Mér finnst þetta alveg ótrúlega fyndið, einn daginn á ég brjálaðan ungling og næsta dag breytist hann í ljúfan rómantískan ungan mann.

4 Comments:
kúl.
er hægt að segja meira? :)
By
Anonymous, at 10:35 AM
Æji rosalega er þetta krúttilegt :D
By
Anonymous, at 12:19 AM
bíddu er ég inni á vitlausri síðu? :o
heli
By
Anonymous, at 3:58 PM
:)
By
Anonymous, at 9:43 PM
Post a Comment
<< Home