Vírusar
Það eru allir (nema Eva) búnir að liggja í flensu á mínu heimili. Við Ármann notuðum helgina í þessi herlegheit, kvef, höfuðverkur, hálsbólga og hiti. Þetta var því afar ánægjuleg helgi hjá okkur!
Ögmundur hlýtur að hafa fengið annan vírus en við þar sem hann fór yfir-um í gær. Þegar ég kom heim úr vinnunni var spegill, rakvél, skæri og annað hárgreiðslutengt dót á borðinu inni í stofu og leifar af hári um allt. Ég var að vona að hann hefði látið allt hárið flakka og var sátt við það ..................EN....
það er ekki hægt að lýsa því sem hann var búinn að láta gera við sig..... Hann er með smá topp... og svo ekkert nema smá sítt að aftan.... Að auki fann hann lit sem ég átti og sletti í hárið, þannig að það er ljós rautt núna. AFAR SMEKKLEGT !
Mér skilst að hann ætli að raka allt af sér í dag. (ég vona það)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home