Hanna

Tuesday, October 25, 2005

Er ég ómissandi?

Ég fór á fundinn í Sjallanum í gær. Asnaðist til að taka GSM síman með mér. Börnin hafa aldrei þurft jafn mikið á mér að halda eins og þessa stund sem ég var í bænum í gær. Það byrjaði á því að Hildur kom í Sjallan til að finna mig því hún hafði misst af strætó. Ég lét hana hringja í Ármann og hann reddaði henni. Ég var bíllaus í bænum og hringdi í Ármann og bað hann um að redda Evu, hún var búin að æfingu kl. 17. Ég og Sigga sjóari fórum svo á Bláu eftir fundinn og við sátum þar í smá stund. Þegar ég kom út voru 4 missed calls og 2 SMS frá börnunum ! Ég var orðin frekar pirruð á þessu og ákvað því að vera aðeins lengur í bænum og við Sigga fórum í búðir að máta föt. Það var gaman. :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home