SALTFISKSPIZZA !
Við fengum gesti á föstudag og buðum upp á Saltfiskspizzu. Hljómar undarlega, en er alveg roooosalega góð og virkilega öðruvísi pizza! Ég mæli með'enni.
Við gerðum tvær svona pizzur og breyttum seinni pizzunni aðeins með því að bæta við sólþurrkuðum tómötum og ólívum. Það var snilld.
Saltfiskspizza
Hráefni
400 g saltfiskur, útvatnaður
2 stk. laukar
5 stk. hvítlauksgeirar
3 dl pizzasósa
300 g ostur
3 dl sætt sinnep
Aðferð
Á meðan deigið er að lyfta sér skerið þið saltfiskinn í strimla, afhýðið lauk og hvítlauk og saxið. Fletjið deigið út og smyrjið pizzasósunni á botninn. Stráið helmingnum af ostinum, hvítlauk og lauk yfir. Raðið því næst saltfiskstrimlum á pizzuna, sprautið sætu sinnepi jafnt yfir og dreifið að lokum restinni af ostinum yfir. Bakið pizzuna í 15–20 mín. við 200°C.
© Hagkaup
Pizzadeig
Hráefni
1 tsk. perluger
1 tsk. sykur
1 bolli volgt vatn
3 bollar hveiti
1 tsk. salt
1 msk. ólífuolía
Aðferð.
Setjið perluger í litla skál ásamt sykri og 1/4 bolla af fingurvolgu vatni og leysið gerið upp. Setjið hveiti á borð, gerið holu í miðjuna og hellið perlugersvökvanum í holuna ásamt salti og olíu. Hnoðið saman og bætið restinni af vatninu útí eftir þörfum. Setjið deigið í skál, breiðið rakan klút yfir og látið hefast þar til stærð þess hefur tvöfaldast.

3 Comments:
oj ekki get ég ímyndað mér að þessi pizza sé góð...er ekki hrifin af fiski og hvað þá ofaná pizzu - þvílíkt hugmyndaflug!!!!
By
Anonymous, at 1:49 PM
Ég segji alltaf við ungana mína að þau megi ekki setja út á mat sem þau hafa ekki smakkað. Og því segji ég bara SKAMM við þig.
By
Hanna, at 2:29 PM
(Pizza með saltfiski) = (saltfiskur með brauði og allskonar kryddi og dóti) Hljómar bara ágætlega.
By
Anonymous, at 7:10 PM
Post a Comment
<< Home