Snillingur ?
Ögmundur alltaf að brillera.
Ögmundur tók þátt í að gera myndband með kennaragríni fyrir árshátíðina í skólanum.
Hann var með nokkrur hlutverk og í einu atriðinu lék hann Siggu Stínu stærðfræðikennara. Honum tókst það ágætlega, og ég var mjög ánægð með framistöðu hans þar til hann snéri sér að myndavélinni og ég sá í hvaða bol drengurinn var. Hann var í bol með mjög áberandi mynd og texta á sem hann keypti sér sjálfur fyrir nokkru, en á bolnum stendur : PORN STAR
Ég spurði Ögmund hvað þeir hefðu verið að huga en hann vildi meina að þetta hefði verið alveg óvart, þ.e hann fór bara í þessum bol í skólan og hann mundi ekki eftir að skipta þegar hann fór að leika
sure!

1 Comments:
Ouch! Þetta er eiginlega frekar gróft...
By
Anonymous, at 1:17 AM
Post a Comment
<< Home