Hanna

Monday, February 20, 2006

Helgin góða

Við fórum í bingó á laugardaginn. Það var ógisslega gaman. Kári var sá eini sem fékk BINGÓ, hann vann hengirúms-ávaxtakörfu. Akkúrat það sem okkur vantaði !

Ármann stóð sig vel á konudaginn, færði mér góða gjöf, bakaði góða köku og eldaði góðan mat. Alveg æðislegt !! Ég er reyndar með smá samviskubit þar sem ég hef sukkað svo hrikalega um helgina. Sætindi, sætindi og meiri sætindi ! Ég stefni á Bjart í kvöld - ætla að fara í salinn og brenna smá mör ... skíðavél 20 mín, göngubretti 15 mín og stigvél 15 mín.... er það ekki ágætis áætlun ?

Ég reyndi að slá í gegn sem hárgreiðsludama um helgina, en komst að því að það er ekki sniðugt að fikta við það sem maður ekki kann. Eva vildi endilega lýsa á sér hárið. hárið lýsitist reyndar slatta mikið, en hún er núna fagur-gul um hárið með dökk appelsínugular strípur. Ég ætla að panta tíma á stofu í dag - þar sem hún er ekki mjög ánægð með þetta!! Ég stalst til að taka myndir af henni og skal setja þær hér inn (ég veit að ég er skepna), þ.e. ef ég man.

6 Comments:

  • Fjölskyldulífið þitt er mjög áhugavert um þessar mundir.. þá sérstaklega á hársviðinu :P

    Ekki það að ég kannist ekki við svona hárlitsbreytingar :P

    By Anonymous Anonymous, at 1:01 AM  

  • já sælla minninga þá ættir þú ekki að vera að lita aðra!!!!! ég var einu sinni fagur gul eftir meðferð hjá þér....

    By Anonymous Anonymous, at 1:27 AM  

  • ahh... var hanna ábyrg fyrir ofur-gula hárinu... aha...

    By Anonymous Anonymous, at 10:00 AM  

  • Ég pantaði tíma hjá björgunarsveit í dag. Eva fer á hárgreiðslustofu núna seinni partinn.

    By Blogger Hanna, at 10:07 AM  

  • Hmmm... hver er Bjartur?

    En það er gaman að heyra söguna á bakvið pissugula hárið hennar Kittýjar.

    By Blogger Siggi Örn, at 1:30 PM  

  • Svona til að milda aðeins það sem ég skrifaði síðast þá var Hanna ekki ábyrg fyrir gula gula hárinu sem ég skartaði einu sinni en hún var sú fyrsta sem litaði mig og það kom ekki sérlega vel út - var vel gult en ekki það versta sem var sett i minn haus...ég var tilraunadýr vinkvenna minna á tímabili - gulhærð, rauðhærð....já en það var gaman að vera ljóska!!!!

    By Anonymous Anonymous, at 11:09 PM  

Post a Comment

<< Home