Hanna

Monday, October 30, 2006

Elli

Eva var svoldið pirruð þegar hún kom heim í gær.
Hún settist við hliðina á mér og sagði þreytulega að hún væri búin að taka ákvörðun um það að lifa ekki lengur en til 25 ára aldurs.
Þegar ég spurði af hverju, svaraði hún að það væri svo leiðinlegt að vera fullorðin - þurfa að borga reikninga, laga til og hugsa um börn.... þetta væri allt svo ömurlegt að hún gæti ekki hugsað sér þannig líf.

Ég gleymdi að spyrja hana af hverju hún miðaði við 25 ára aldurinn - ætli maður verði allt í einu fullorðinn þá....

Ég býst við að hún hafi viljað fá önnur viðbrögð frá mér því hún móðgaðist ægilega við mig og strunsaði inn í herbergi og skellti á eftir sér. Ég man nú ekki hvað ég sagði við hana sem fór svona í hana.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home