Hanna

Friday, October 13, 2006

Nudd

Ég er ótrúlega heppin, vinkona mín er að læra nudd og þarf að æfa sig. Hún hringdi og spurði hvort ég gæti ekki verið tilraunadýr. Eee..... JÁ takk.

Yndislegt að fá svona nudd ! Ég fékk bæði fótanudd og háls- og herða-nudd. Ég gæti alveg vanist þessu. En svo þarf hún að æfa sig í allan vetur og spurði hvortég væri ekki til í að koma aftur
... Eeee..... JÚ takk !

Ég dáist að fólki sem nennir að læra svona lagað. Ég fór að hugsa hvernig það væri að þurfa nudda fólk sem er feitt og bólugrafið.... iiiiiiiíúúúú. Vinkona mín fannst það nú lítið mál. Ég skil það ekki!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home