Hanna

Monday, October 02, 2006

endalaus gleði

Ég fór í óvissuferð með vinnunni á fös.

Við fórum í heimsókn í banka, föndruðum "þæfð epli" í Rósenborg, fengum að borða á "Bellunni" og fórum svo á sýninguna "Mike attack". Þetta var mjög gaman, en ég fékk magakveisiu í miðri óvissuferð, hélt út til 11 en þá var ég búin að fá nóg.
Ég er orðin algjör djamm-aumingji!

Ég var í góðum bissness um helgina. Mamma Myriam keypti myndir af mér. Best fannst mér að hún keypti mynd af Skeið sem mistókst hjá mér sem ég ætlaði fyrst að henda. En hún var voðalega hrifin af myndinni og vildi endilega kaupa hana. É g seldi henni 4 myndir og nokkur jólakort. Ég ætla nota ágóðan til að kaupa málningu og pensla fyrir vatnslitanámskeiðið sem byrjar á miðvikudag.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home